29. maí 2011

Það voru aðeins níu Dalagarpar sem lögðu í það að ganga fyrir Skorravíkurmúlann í dag.  Sennilega setti veðrið strik í reikninginn, en norðanáttin var ansi stíf og köld (6 gráður)  út Hvammsfjörðinn. Þá er sauðburði ekki ennþá lokið svo ekki komust sauðfjárbændurinir með í dag.
Nokkurn tíma tók að að flytja bíla að hinum enda gönguleiðarinnar en göngumenn lögðu af stað frá Teigi rétt fyrir kl. 12.00 og gengu í þrjá og hálfan tíma að Skorravíkuránni.   Vindurinn var allan tímann í bakið.  Staldarað var við á  Ketilsstöðum og í Skorravík ásamt einu nestisstoppi.  Vegna kuldans urðu stoppin í færra lagi.

Ferðin var öll hin hressilegasta og ekki vantaði góða skapið og gleðina í hópinn.  Myndir sem Nonni og Lói tóku eru nú komnar inn á heimasíðuna og eru á þessari slóð hérna.

26. maí 2011

Nú á sunnudaginn kemur leggjum við í næstu göngu.  Við ætlum að ganga fyrir Skorravíkurmúla á Fellsströnd.  Gangan er öll á jafnsléttu eftir vegslóða og því alls ekki erfið.   Áætlað er að gangan taki minnst þrjá tíma en einhver tími fer í flutninga á bílum og fólki.   Síðasta áætlun um göngutíma og ferðatíma fór gjörsamlega í vaskinn, svo vinsamlega takið þessari áætlun með fyrirvara.  Eins og í síðustu göngu verður enginn að flýta sér neitt... nema veður verði því mun verra.  Áherslan er á samveru og útiveru.

Mæting er kl. 11.00 við afleggjarann niður að Teigi.  Þar ráðum við aðeins ráðum okkar áður en lengra er haldið á afleggjarann,  því við þurfum að að færa x marga bíla (fer eftir fjölda göngumanna)  vegleiðina yfir að hinum enda gönguleiðarinnar (Skorravík).  Spáð er hægu, mildu og þuru verði af norðaustan, en án sólar.  Hiti 8 - 10 stig.

Þegar þetta er skrifað er ekki fast í hendi hver verður leiðsögumaður okkar í ferðinni.

Nú er vonandi farið að hægjast um hjá sauðfjárbændum svo vonandi sjá þeir sér nú fært að koma með.

Sjáumst sem flest

Eyjólfur og Herdís

17. maí 2011

Göngudagatalið

Það hefur heldur verið fjölga í hópnum hjá okkur og eru félagar nú orðnir 23 talsins á öllum aldri.   Ef þið vitið um einhvern áhugasaman látið þá endilega vita.

Nú líður að næstu göngu og er hún áætluð sunnudaginn 29. maí.  Verður þá gengið fyrir Skorravíkurmúla á Fellsströnd.  Gönguleiðin er nokkuð löng (fer þó eftir útfærslu) en er öll á jafnsléttu og auðveld.   Sveinn á Staðarfelli áætlar að það taki um fjórar klukkustundir með þægindarstoppum að labba leiðina frá Teigi.   Áætlun ferðarinnar verður kynnt er nær dregur.

Áætlun á  göngur sumarsins er komin inn á göngudagatalið hér til hliðar. Áætlunin er unnin eftir áherslum sem urðu til í heita pottinum á Laugum eftir síðustu göngu.  Ljóst er að áætlaðar göngur skarast við ýmsa atburði innan héraðs sem utan en vonandi verða alltaf einhverjir til að mæta í hverja göngu fyrir sig.  Áætlað er einnig að vera með kirkjugöngur frá Búðardal upp í Hjarðarholt í guðþjónustur þar.  Ekki er komin dagsetning á þær.

Þá er bara að fara út og æfa sig og mæta hress í næstu gönguferð.

10. maí 2011

Myndir frá gönguferðinni á Tungumúla

Það voru 14 Dalagarpar sem gengur á Tungumúlan sunnudaginn 8.maí.  Jón Benediktsson fyrrverandi bóndi í Sælingsdalstungu gekk með hópnum og sagði frá staðháttum, örnefnum og öðru sem tengdist svæðinu.  Veður var þokkalegt; fremur stíf norðanátt en bjartur himinn er leið á daginn.  Hækunin var um 300 metar.
Margt var spjallað og skrafað á leiðinni og fólk gaf sér góðan tíma til að ganga á fjallið og njóta útiveru og samvista.  Eftir gönguferðina fór hluti hópsins í sund á Laugum.
Myndir af ferðinni eru komnar inn á síðuna hér til hliðar.  Einnig hægt að fara beint á albúmið á þessari slóð. 

Í heita pottinum á Laugum voru lagðar línur með gönguferðir sumarsins.  Niðurstaðan var eitthvað í þessa átt:
a) Gengið á eitt hátt fjall á mánuði
b) Farið í krikjugöngur; gengið frá Búðardal og til messu í Hjarðarholti
c) Farið í léttari göngur; fell, múlar og á jafnslétta (t.d.fjörur).
d) Reynt að hafa alltaf með í för einhvern kunnugan staðháttum, sögu og örnefnum.

Ekki var gengið frá neinni dagskrá en Herdís og Eyjólfur munu gera tillögu að slíku á næstu dögum.

4. maí 2011

Fyrsta ganga sumarsins

Sunnudaginn 8.maí verður fyrsta ganga gönguhópsins farin.  Dalagarpar ætla að ganga á Tungumúla, sem er  á milli Sælingsdals og Svínadals.  Gangan er létt og hentar alveg stálpuðum börnum.
Farið verður frá Sælingsdalstungu kl. 11.00 og nesti snætt í Múlanum.  Jón Benediktsson (Nonni) gengur með hópnum og upplýsir fólk um staðhætti og örnefni.  Að göngu lokinni verður opið í sundlauginni á Laugum, þökk sé Önnu og Jörgen.  Áætlað er að vera komin í sundið milli  kl. 13.-14.

Veðurspá er góð en rétt að minna á að enn er ekki kominn mikill lofthiti.  Ekki er þörf á sérstökum útbúnaði nema þá sundfatnaði og aðgangseyri fyrir þá sem ætla í sundið.

Meiningin er að í þessari fyrstu ferð verði tíminn m.a. notaður til að spjalla saman, koma með hugmyndir að gönguleiðum og útfærslu þeirra.

Allir eru velkomnir í gönguferðina og þeir sem vilja skrá sig í gönguhópinn sendi endilega skráningu á netfangið dalagarpar@gmail.com